Persónuverndarstefna

Síðast uppfært 13. nóvember 2026

Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingum innst safnar í gegnum vefinn, til hvers þær eru notaðar og hvaða réttindi þú hefur. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerð ESB (GDPR).

Ábyrgðaraðili

innst. Fyrirspurnir um persónuvernd sendast á hallo@innst.is.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum formið á vefnum fáum við:

Við söfnum engum öðrum upplýsingum um þig í gegnum vefinn og notum ekki vafrakökur til að fylgjast með þér.

Ef þú verður viðskiptavinur

Þegar þú kaupir vef eða áskrift þurfum við líka upplýsingar til að gera samning og senda reikninga:

Grundvöllur þeirrar vinnslu er samningurinn við þig og lagaskylda okkar til að halda bókhald. Greiðslur fara í gegnum greiðsluþjónustu eða banka sem vinnur upplýsingarnar fyrir okkar hönd, og við sjáum aldrei kortanúmer.

Til hvers við notum upplýsingarnar

Eingöngu til að svara fyrirspurninni þinni, senda þér tilboð og, ef þú verður viðskiptavinur, til að vinna verkið. Grundvöllur vinnslunnar er samþykki þitt, sem þú gefur með því að haka í reitinn í forminu, og ráðstafanir sem þú biður um áður en samningur er gerður. Við seljum aldrei upplýsingarnar og notum þær ekki í markaðsskyni án sérstaks samþykkis.

Hvar upplýsingarnar eru geymdar

Formið er rekið af Netlify, Inc., sem hýsir vefinn og tekur við innsendingum fyrir okkar hönd sem vinnsluaðili. Netlify getur geymt gögn utan Evrópska efnahagssvæðisins, meðal annars í Bandaríkjunum, á grundvelli staðlaðra samningsskilmála ESB. Fyrirspurnir berast okkur svo í tölvupósti.

Letrið á vefnum er hýst hjá okkur sjálfum. Vefurinn er hýstur hjá Netlify og fer í gegnum Cloudflare. Þau vinna úr tæknilegum upplýsingum eins og IP-tölu tækisins þíns til að geta birt vefinn.

Við notum Cloudflare Web Analytics til að telja heimsóknir og sjá hvaða síður eru skoðaðar og hvaðan gestir koma. Það notar engar vafrakökur, geymir ekki IP-tölur og safnar engu sem ber kennsl á þig.

Hversu lengi við geymum þær

Fyrirspurnum sem leiða ekki til viðskipta eyðum við innan 12 mánaða. Upplýsingar um viðskiptavini geymum við eins lengi og samningur er í gildi. Reikninga og bókhaldsgögn geymum við í sjö ár eins og lög nr. 145/1994 um bókhald krefjast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

Sendu okkur línu á hallo@innst.is og við svörum innan 30 daga. Ef þú ert ósátt(ur) við hvernig við förum með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar.

Breytingar

Ef við breytum stefnunni birtum við nýja útgáfu hér með nýrri dagsetningu.

Aftur á forsíðu