Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um vefi og þjónustu sem innst, kt. [KENNITALA], selur. Öll verð eru án virðisaukaskatts. Ef skriflegur samningur eða tilboð segir annað gildir það framar þessum skilmálum.
Áskrift
- Lendingarsíða kostar 12.990 kr. á mánuði og fyrirtækjavefur 18.990 kr. á mánuði. Ekkert stofngjald.
- Innifalið er hönnun og smíði vefsins, hýsing, öryggisuppfærslur, afrit og 1 vinnustund á mánuði fyrir breytingar.
- Ónotuð vinnustund færist ekki á milli mánaða. Vinna umfram hana kostar 14.990 kr. á klukkustund og er unnin eftir að þú samþykkir hana.
- Binditíminn er 12 mánuðir frá því vefurinn fer í loftið. Eftir það heldur áskriftin áfram mánaðarlega og hægt er að segja henni upp með eins mánaðar fyrirvara.
- Ef áskrift er sagt upp á binditímanum greiðast þeir mánuðir sem eftir eru af binditímanum.
- Á meðan áskriftin er í gildi á innst vefinn sjálfan, þ.e. hönnunina og kóðann. Efnið sem þú leggur til, texti, myndir og merki, og lénið eru alltaf þín eign.
- Eftir 12 mánuði getur þú keypt vefinn út fyrir 29.990 kr. (lendingarsíða) eða 49.990 kr. (fyrirtækjavefur). Þá færist vefurinn til þín og áskriftinni lýkur, en þú getur haldið hýsingu og umsjón hjá okkur ef þú vilt.
- Ef áskrift lýkur án útkaupa tekur innst vefinn úr loftinu. Þú færð efnið þitt afhent og lénið er áfram þitt.
Staðgreiddur vefur
- Lendingarsíða kostar 59.990 kr. og fyrirtækjavefur 109.990 kr. Helmingur greiðist við pöntun og afgangurinn þegar vefurinn fer í loftið.
- Innifaldar eru allt að tvær umferðir af breytingum á hönnun áður en vefurinn fer í loftið. Frekari breytingar kosta 14.990 kr. á klukkustund.
- Þegar vefurinn er greiddur að fullu átt þú hann.
- Hýsing kostar 3.990 kr. á mánuði og er án binditíma. Einnig er hægt að velja Umsjón í stað hýsingar.
Umsjón og Vöxtur
- Umsjón kostar 4.990 kr. á mánuði og Vöxtur 19.990 kr. á mánuði. Hvorugt er með binditíma og hægt er að segja upp með eins mánaðar fyrirvara.
- Innifaldar vinnustundir færast ekki á milli mánaða.
- Við vinnum að því að bæta sýnileika vefsins á leitarvélum, en enginn getur lofað tilteknu sæti á Google, og það gerum við ekki heldur.
Sérlausnir
Um sérlausnir gildir tilboðið og samningurinn sem gerður er um verkið.
Greiðslur
- Mánaðargjöld greiðast fyrirfram í upphafi hvers mánaðar.
- Ef greiðsla dregst um meira en 30 daga getum við gert vefinn óvirkan þar til hún hefur borist, eftir að hafa látið þig vita með tölvupósti. Dráttarvextir reiknast samkvæmt lögum.
- Verð getur breyst einu sinni á ári. Breytingar tilkynnum við með minnst eins mánaðar fyrirvara og þær hafa ekki áhrif á binditíma sem er í gangi.
Þín ábyrgð
Þú berð ábyrgð á því að efnið sem þú lætur okkur fá brjóti ekki gegn rétti annarra, t.d. höfundarrétti á myndum, og að upplýsingarnar á vefnum séu réttar.
Okkar ábyrgð
Við gerum okkar besta til að vefurinn sé alltaf aðgengilegur og tökum reglulega afrit. Við berum þó ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, t.d. töpuðum viðskiptum, ef vefurinn liggur niðri, og ábyrgð okkar takmarkast við þá upphæð sem þú hefur greitt síðustu 12 mánuði.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningi sem ekki tekst að leysa í sátt má vísa til Héraðsdóms Reykjavíkur.
Spurningar um skilmálana sendast á hallo@innst.is. Sjá líka persónuverndarstefnuna.